A A A

Sumarstörf

Starfskraftur óskast til þess að hafa yfirumsjón  og  verkstjórn með vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2013  er stendur frá  5.júní til og með 18.júlí.

Menntunar- og hæfniskröfur :

  • Reynsla og menntun/þekking á skipu- og verklagi við umhirðu grænna svæða.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ökuréttindi
  • Reyklaus
  • Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 25 ára

Starfsfólk óskast  til þess að sinna umhirðu grænna svæða og minniháttar viðhaldsverkum  s.s. málningarvinnu.  Laus eru til umsóknar  fjögur  100 % stöðugildi,  vinnutími frá kl. 8 – 12  og 13 – 17.


Vinnuskóli  Tálknafjarðarhrepps
hefst miðvikudaginn 5.júní og stendur til fimmtudagsins 18.júlí.  Helstu verkefni skólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins.  Þeir sem geta sótt um í vinnuskólanum eru börn fædd á árunum 1997 – 1999.    Reglur og skilmálar eru aðgengileg á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps sem og umsóknareyðublöð starfsumsókn og sérstök umsókn um vinnuskóla. 
 

Nánari upplýsingar m.a. um launakjör veitir sveitastjóri skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, í síma 456-2539 og netfang  sveitarstjori@talknafjordur.is
 

Umsóknareyðublöð starfsumsókn og umsókn um vinnuskóla eru aðgengileg á skrifstofu og á heimasíðu sveitarfélagsins  talknafjordur.is
 

Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrir 22.maí n.k.

sveitarstjóri

« Október »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir
Vefumsjón