Tálknafjörður innan við þorpið
Fyrir innan þorpið í Tálknafirði er að vaxa upp skógur í landi Gileyrar sem ásamt eigendum jarðanna Litla-Laugardals, Kvígindisfells og Hvammeyrar eru þátttakendur í skógræktarverkefninu Skjólskógar á Vestfjörðum. Tálknafjörður mun því innan fárra ára verða með stærri skógarsvæðum á Vestfjörðum og verður áhugavert að fylgjast með þeim breytingum á veðurfari og umhverfi sem verða við svo umfangsmikla skógrækt. Næsta jörð er Eysteinseyri þar sem eru vegamót til Bíldudals og Patreksfjarðar. Bærinn Hjallatún stendur innst í firðinum en jörðin Norður-Botn er komin í eyði. Frá Hjallatúni er þjóðleiðin Miðvörðuheiði sem farin var inn á Barðaströnd og er þar komið niður að bænum Haga á Barðaströnd, leiðin er nokkuð löng og mjög villugjörn í þoku og slæmu skyggni.