Aðstoðarskólameistari – Fjölbrautaskóla Snæfellinga – Grundarfirði
Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir aðstoðarskólameistara í 75% stöðu frá og með 15.ágúst 2015.
Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal aðstoðarskólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og vinnur með honum að daglegri stjórnun og rekstri skólans. Hann hefur m.a. umsjón með áfangakerfi skólans þ.m.t. námsvali og skólasókn nemenda. Hann tekur virkan þátt í námskrárgerð, þróunarverkefnum og innra mati skólans og annast upplýsingagjöf um skólastarfið til hagsmunaaðila.
Leitað er eftir einstaklingi með góða færni í mannlegum samskiptum og ríkan áhuga á að vinna með ungu fólki. Þá þarf viðkomandi að hafa góða leiðtoga- og skipulagshæfileika, vera fær um taka frumkvæði og vinna sjálfstætt.
Launakjör eru í samræmi við gildandi kjarasamning fjármálaráðherra við viðkomandi stéttarfélag og stofnanasamning skólans. Aðstoðarskólameistari er ráðinn til fimm ára í senn.
Ekki er nauðsynlegt að sækja um á sérstökum eyðublöðum en með umsókn þarf að leggja fram gögn um menntun, starfsreynslu og meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staðan losnar á ný.
Nánari upplýsingar gefur skólameistari Jón Eggert Bragason (joneggert@fsn.is) í síma 8917384.
Umsóknir berist á netfangið joneggert@fsn.is eða til Fjölbrautaskóla Snæfellinga, b.t. skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.
Umsóknarfrestur er til 4. ágúst 2015.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er framhaldsskóli með áfangasniði sem vill skipa sér í fremstu röð og hefur það markmið að veita öllum nemendum góða menntun.http://www.fsn.is/
Jón Eggert Bragason
skólameistari
http://www.starfatorg.is/kennsla_rannsoknir/nr/19751
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir