Breyting á opnunartíma sundlaugar næstu daga
Nú er allt komið á fullt hjá okkur við að undirbúa sumarið. En núna á þriðjudaginn 24. maí og miðvikudaginn 25. maí opnum við ekki fyrr en klukka 17:00 vegna þess að starfsólkið er að fara á námskeiðið “skyndihjálp og björgun”. Síðan eftir lokun á miðvikudeginum tökum við vatnið af lauginni svo það sé hægt að mála hana og gera við leka fyrir sumarið. Við gerum svo ráð fyrir því að geta opnað hana aftur á sunnudeginum 29. maí.
Þessi vika er alþjóðleg hreyfivika og til þess að hvetja fólk til að nýta sundlaugina okkar meira verður frítt í sund mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Opnunartími næstu daga:
Þriðjudagurinn 24. maí 17:00 – 21:00
Miðvikudagurinn 25. maí 17:00 – 21:00
Fimmtudagurinn 26. maí LOKAÐ
Föstudagurinn 27. maí LOKAÐ
Laugardagurinn 28 maí LOKAÐ
Sunnudagurinn 29. maí 13:00 – 15:00
Mánudagurinn 30 maí 06:45 – 12:00 og 16:00 – 21:00
Þriðjudagurinn 31. maí 07:00 – 12:00 og 16:00 – 21:00
Miðvikudaginn 1. júní byrjar svo sumar opnunin sem verður 09:00 – 21:00
Ég vona að þetta valdi ekki miklum óþægindum og hvet fólk til þess að fara út og njóta vorsins í fallega firðinum okkar.
Jóhanna Eyrún Guðnadóttir, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir