Breytingar á sóttvarnarreglum, sundlaugin opnar
Tilkynnt hefur verið um breytingar á sóttvarnarreglum vegna Covid-19 sem taka gildi fimmtudaginn 10. desember 2020 og gilda til og með 12. janúar 2021. Hvað varðar starfsemi á vegum Tálknafjarðarhrepps þá er einkum tvennt sem breytist.
Sundlaugin mun opna að nýju fyrir almenning á auglýstum opnunartíma. Þar munu eftirfarandi reglur gilda:
- Heimilt verður að hafa opið fyrir 50% af hámarksfjölda.
- 2 metra reglan gildir í klefum og á sundlaugarsvæði.
- Aðeins 4 fullorðnir í hvern pott.
- Börn fædd 2005 og siðar eru ekki talin með í hámarksfjölda gesta.
- Gestir þurfa að einnig að taka tillit til skólasunds á virkum dögum.
- Tækjasalur og íþróttasalur verða áfram lokaðir fyrir almenning.
Í starfi Tálknafjarðarskóla verður sú breyting að ekki verður lengur grímuskylda fyrir nemendur í elstu bekkjum og þeir þurfa ekki að fara eftir 2 metra reglunni. Aðrar breytingar verða ekki á fyrirkomulagi skólastarfs að sinni.
Vonandi erum við nú að sigla í gegnum síðasta hlutann af þeim takmörkunum sem baráttan við farsóttina hefur sett á daglegt líf og samskipti hjá öllum. Það er væntanlega stutt í að bólusetningar vegna farsóttarinnar hefjist og þar með að hlutir færist smám saman í eðlilegt horf. Það er hins vegar mjög mikilvægt að missa ekki móðinn á lokasprettinum og fara eftir þeim sóttvarnareglum sem eru í gildi. Við verðum að halda áfram að fara eftir 2 metra reglunni, virða fjöldatakmarkanir, nota grímur þar sem það er skylda og gæta vel að handþvotti og hreinlæti. Við erum öll í þessu saman.
Ólafur Þór Ólafsson
sveitarstjóri
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir