Fasteignagjöld 2017
Álagning íbúðarhúsnæðis : 2017
Fasteignaskattur. 0,5% af hús- og lóðamati.
Vatnsgjald. 0,35% af hús- og lóðamati.
Holræsagjald. 0,4% af hús- og lóðamati.
Lóðarleiga. 2,5% af lóðarmati.
Sorphreinsunargjald, íbúðir 17.300.- kr. á hvert sorpílát.
Sorpeyðingargjald, íbúðir 24.900.- kr. á hvert sorpílát.
Umhverfisgjald, sumarhús, lögbýli 24.900.- kr. á hvert sorpílát
Gjalddagar verða 7. Fyrsti gjalddagi 1.febrúar, síðan 1.hvers mánaðar (febrúar til ágúst). Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Ef gjöld eru samtals lægri en kr. 25.000.- er um einn gjalddaga að ræða og er hann 15.mars. Ef álagning er kr. 500.- eða lægri verður krafan ekki innheimt. Álagningarseðlar verða sendir út en verða einnig aðgengilegir á ísland.is
Vinsamlega athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar nema þess sé sérstaklega óskað. Greiðsluseðlar munu birtast í heimabanka með sama hætti og á árinu 2016. Engin breyting verður hjá þeim sem pöntuðu seðla í fyrra. Hægt er að panta og afpanta seðla með því að hringja í síma 456-2539 á opnunartíma skrifstofu og/eða senda tölvupóst á talknafjordur@talknafjordur.is.
Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega, sem eiga lögheimili í og eru þinglýstir eigendur viðkomandi fasteignar og/eða geti á rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68.gr.laga nr. 90/2003 um tekju og eignaskatt. Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Miðast afslátturinn við eftirfarandi tekjumörk liðins árs :
.
a) Ef um er að ræða einstaklinga;
- með brúttótekjur undir 2.847.000 kr. getur niðurfelling orðið 100%
- með brúttótekjur milli 2.847.001 - 3.560.000 kr. getur niðurfelling orðið 70%
b) Ef um er að ræða hjón;
- með brúttótekjur undir 3.928.000 kr., getur niðurfelling orðið 100%
- með brúttótekjur milli 3.928.001 - 4.998.000 kr. getur niðurfelling orðið 70%
Við álagningu fasteignagjalda er afslátturinn reiknaður út frá álagningu 2016 vegna
skatttekna 2015. Vinsamlega athugið að afslátturinn verður endurreiknaður þegar
skattframtal 2017 vegna skatttekna 2016 liggur fyrir.
Álagning atvinnuhúsnæðis :
Fasteignaskattur er 1,65% af hús- og lóðarmati, vatnsgjald 0,6% og holræsagjald 0,4% . Lóðarleiga er 2,5% af fasteignamati lóðar. Endurvinnslugjald vegna móttöku og þjónustu á gámavelli við Nýjabæ.
Að öðru leyti vísast til samþykkta Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps frá 15.nóvember 2014 og laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 ásamt síðari breytingum.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir