Fjarfundur - efni Kerfisáætlunar
Orkumál á Vestfjörðum eru nú sem aldrei fyrr, eitt stærsta áherslumál sveitarstjórna og atvinnulífs á Vestfjörðum og þar eru flutningsmál raforku lykilatriði.
Áætlun um framkvæmdir og framtíðarskipulag flutnings raforku um landið eru sett fram í Kerfisáætlun Landsnets.
Drög að nýrri Kerfisáætlun er nú í opnu umsagnarferli og finna má efni hennar á heimsíðu Landsnets Kerfisáætlun 2023-2032 (landsnet.is)
Af þessu tilefni er Vestfjarðastofa í samstarfi við Landsnet að boða til kynningar í fjarfundi um efni Kerfisáætlunar, mánudaginn 12. júní kl 12.00.
Gnýr Guðmundsson forstöðumaður Kerfisþróunar hjá Landsneti mun þar fara yfir áætlunina, kynna helstu áherslur og breytingar frá síðustu áætlun og hvað er framundan þegar kemur að uppbyggingu flutningskerfis raforku á næstu árum með sérstaka áherslu á Vestfirði.
Mikilvægt er að skrá sig á fundinn til að fá fundarhlekk.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir