Fjölgun smita á sunnanverðum Vestfjörðum
Staðfestum covid smitum hefur nokkuð fjölgað á sunnanverðum Vestfjörðum og er staðan núna sú að 22 einstaklingar eru með staðfest smit. Flest eru smitin á Patreksfirði. Vettvangsstjórn almannavarna á sunnanverðum Vestfjörðum fundaði fyrr í kvöld og einnig aðgerðarstjórn Tálknafjarðarhrepps. Enn þykir ekki ástæða til að grípa til takmarkanna á starfsemi stofnanna Tálknafjarðarhrepps umfram það sem almennar sóttvarnarreglur segja til um. Á því er þó sú undantekning að Félagsmiðstöðin Tunglið verður lokuð út vikuna. Þá eru íbúar beðnir um að koma ekki á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps nema brýna nauðsyn beri til og gæta þá vel að sóttvörnum. Áfram verður náið fylgst með þróun mála í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld og aðgerðarstjórn Almannavarna.
Áframhaldandi sýnataka verður á vegum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í Félagsheimilinu á Patreksfirði á morgun frá kl. 9:30, fimmtudaginn 25. nóvember nk. Allir íbúar með einkenni (þó þau séu lítil) eða tengsl við smitaða einstaklinga eru hvattir til að mæta í sýnatöku eftir að hafa bókað sig á Heilsuveru. Heimsóknabann er á legudeild heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði.
Fjöldi bólusettra einstaklinga á sunnanverðum Vestfjörðum er mjög góður og því erum við í betri stöðu en við vorum fyrir ári síðan að takast á við smitin sem nú hafa komið upp. Tálknafjarðarhreppur hvetur alla íbúa til að gæta að einstaklingsbundnum sóttvörnum, hafa hægt um sig næstu daga og standa saman eins og samfélaginu er einu lagið til að draga úr frekari hættu á útbreiðslu smita.
Ólafur Þór Ólafsson
sveitarstjóri
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir