Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar, framlengdur umsóknarfrestur
Tálknafjarðarhreppur auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar.
Leitað er að úrræðagóðum einstaklingi sem er lipur í mannlegum samskiptum, með vilja til að taka ábyrgð, getu til að sýna frumkvæði í starfi og áhuga á að taka að sér spennandi verkefni.
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar ber ábyrgð á rekstri hennar þ.m.t. á íþróttahúsi, sundlaug og félagsheimili. Starfsmaðurinn sér um að skipuleggja það starf sem fram fer á vegum Íþróttamiðstöðvarinnar, ber ábyrgð á mannauði starfseminnar og ber ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, félög og stofnanir sem nýta Íþróttamiðstöðina. Gert er ráð fyrir því að forstöðumaður gangi vaktir að hluta.
Við ákvörðun um ráðningu verður horft til eftirfarandi þátta:
-
Sjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar.
-
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
-
Jákvæðnu, sveigjanleiki og góðir skipulagshæfileikar.
-
Rík þjónustulund.
-
Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
-
Hugmyndaauðgi, frumkvæði og drifkraftur.
-
Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
-
Geta til að tileinka sér nýja færni
-
Góð íslenskukunnátta og geta til samskipta á ensku.
-
Önnur reynsla sem nýtist í starfinu.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um. Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð samkvæmt 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvöðun um ráðningu hefur verið tekin.
Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélags.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri í síma 450-2500 eða í gegnum netfangið sveitarstjori@talknafjordur.is.
Umsóknareyðublöð er að finna á talknafjordur.is og skila skal umsóknum á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 17. ágúst 2023.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir