Laust starf
- Hafnarvörður/áhaldahús/eignasjóður.
Helstu verkefni :
- Vigtun sjávarfangs skv. lögum og skil á skýrslum því tengdu.
- Umhirða hafnarsvæðis - viðhald og eftirlit með tækjum og fasteignum.
- Umsjón með niðurröðun báta við bryggjur í samráði við útgerðaraðila.
- Skil á mánaðalegum skýrslum til skrifstofu vegna hafnargjalda,rafmagns ofl
- Skráning á skipakomum og skil á skýrslum til skrifstofu því tengdu.
- Útvega verndarfulltrúa við skipakomur.
- Almennt viðhald fasteigna og tækja allra deilda hreppsins.
- Umsjón með viðhaldi, hálkuvörn og snjómokstri á götum í þéttbýli.
- Umsjón með moltutromlu/endurvinnslu og ástandi áhaldahúss.
- Vinnuvélastjórnun.
- Útgáfa skilaskýrslna til úrvinnslusjóðs.
- Gerð fjárhagsáætlunar fyrir áhaldahús, hafnarsjóð og eignarsjóð
- Umsjón með gámaplani sveitarfélagsins.
- Umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins.
Starfskröfur :
- Höfn : Almenn tölvukunnátta er skilyrði, sem og þekking á excel,word og interneti vegna vinnu við Gafl vigtarforrit og tölvupóst. Viðkomandi þarf annað hvort að hafa réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða að vera reiðubúinn til að fara á námskeið til öflunar slíkra réttinda. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku, og ensku.
- Áhaldahús : Iðnmenntun æskileg. Hæfi til að greina þörf á viðhaldi fasteigna, gatna, vatnsveitu, fráveitu, véla og tækja sveitarfélagsins.
- Eingarsjóður : Viðkomandi þarf að geta sinnt almmenu viðhaldi, og að annast gerð viðhaldáætlunar fyrir fasteignir sveitarfélagsins.
- Gámaplan: Viðkomadi annast umhirðu á gámaplanai og móttöku á sorpi frá einstaklingum og fyrirtækjum og skilar inn skýrslu til skrifstofu um magn á sorpi o.fl.
- Vinnuskóli: Viðkomandi gerir áætlun um rekstur vinnuskóla, sér um ráðningu flokkstjóra og skipuleggur allt starf vinnuskólans.
Viðkomandi þarf að vera lipur í samskiptum, stundvís, reglusamur og snyrtimennska höfð í fyrirrúmi. Þá þarf viðkomandi að hafa getu til þess að vinna sjálfstætt og hafa vilja til að sýna ábyrgð. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1.júni 2017.
Starfshlutfall er 100%, laun skv. kjarasamningi FosVest og launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra á skrifstofu eða rafrænt á netfang sveitarstjori@talknafjordur.is Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á http://talknafjordur.is/ Umsókn þurfa að fylgja eftirtalin gögn, sakavottorð og vottorð um búsforræði.
Umsóknarfrestur er til 10. maí 2017.
Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri á skrifstofu sveitarfélagsins og/eða í síma 456-2539, / netfang sveitarstjori@talknafjordur.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir