Má bjóða þér sæti?
Melrakkasetrið opnar aftur um páskana eftir gagngerar endurbætur innanhúss.
Eins og kunnugt er stendur Melrakkasetrið fyrir ýmsum menningarviðburðum sem haldnir eru á efri hæð setursins í Eyrardal. Til að tryggja gestum okkar sæti þurfum við allt að 40 stóla á loftið en hingað til hafa stólar góðfúslega verið fengnir að láni í Grunnskóla Súðavíkur.
Við ætlum að bjóða velunnurum okkar að "tryggja sér sæti" með því að kaupa merktan stól á menningarloftið okkar. Penninn hefur ákveðið ríða á vaðið og styðja Melrakkasetrið með 5.000,- kr. framlagi fyrir hvern stól sem keyptur verður.
Nú leitum við til fleiri velunnara, bæði einstaklinga og fyrirtækja sem vilja styðja við starfsemi setursins og hjálpa okkur að kaupa stóla á loftið. Verðið fyrir hvern stól er 15.000,- kr.
Þegar greitt hefur verið fyrir stólinn verður hann merktur gefanda sem þar með á „tryggt sæti" á menningarloftinu. Að auki fylgir gjafabréf á sýningu Melrakkasetursins og veitingar í Rebbakaffi.
Hægt er að leggja andvirði stólsins inn á styrktarsjóð Melrakkasetursins og senda tilkynninguna „stóll" á netfangið: melrakki@melrakki.is - og takið fram hverjum stóllinn á að vera merktur.
Reikningsnúmer: 0154 - 15 - 250394. Kennitala: 660907-1060. Upphæð: kr. 15.000,-
Kynntu þér starf Melrakkasetursins á melrakki.is
Melrakkasetur Íslands ehf er rannsókna- og fræðasetur með „non-profit" stefnu. Hluthafar eru 58 talsins, einstaklingar, fyrirtæki og sveitafélög. Allir styrkir og ágóði af sölu aðgöngumiða og veitinga fer í að byggja upp sýninguna og sinna rannsóknum. Opið er í Melrakkasetri frá 10-22 alla daga frá 1. júní til 15. ágúst. Á páskunum er opið frá Skírdegi til annars í páskum frá 12-18 en annars er opið samkvæmt samkomulagi. Á lofti Melrakkasetursins er ágæt aðstaða til fundahalds og við tökum vel á móti öllum gestum.
Nánari upplýsingar fást hjá Ester Rut Unnsteinsdóttur, forstöðumanni, í síma: 862 8219 eða með tölvupósti á netfangið: melrakki@melrakki.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir