Opinn fræðslufundur um skólamál
Fundi um skólamál sem halda átti í Dunhaga hefur verið frestað.
Stefnt er að því að halda fundinn eftir páska.
Skólastarf er fjöregg hvers samfélags. Hjá Tálknafjarðarskóla er í gangi vinna við skólastefnu, skólaþing var haldið og miðar vel og verður staðan kynnt á næsta fundi skólaráðs. Þá þykir við hæfi að líta í kringum sig og sjá hvað aðrir skólar eru að gera. Það er okkur ánægjuefni að bjóða velkomna til okkar góða gesti frá Hjallastefnunni.
Hér með er boðað til opins fræðslufundar um skólamál
mánudagskvöld 26. mars kl. 20 í Dunhaga.
Gestir fundarins eru Margrét Pála Ólafsdóttir fræðslustjóri og Áslaug Hulda Jónsdóttir framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar.
Dagskrá:
1. Kynning skólastjóra
2. Kynning á Hjallastefnunni - Margrét Pála Ólafsdóttir
3. Fyrirspurnir og almennar umræður
Við hvetjum alla sem láta sig skólamál og samfélagið í heild sig varða að mæta til fundarins og eiga góða kvöldstund með skemmtilegu fólki. Boðið verður upp á kaffi.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir