Styrkir til bættrar einangrunar húsnæðis – Átaksverkefni 2011
Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkustofnun/Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess. Þessu verkefni er beint að húsnæði sem byggt er fyrir 1945, áður en lágmarkskröfur til einangrunargilda (U-gilda) byggingarhluta voru settar í reglugerðir. Um styrk getur sótt hver sá eigandi húsnæðis (byggt fyrir 1945) sem fær húshitunarkostnað sinn niðurgreiddan úr ríkissjóði. Upphæð styrks til einstakra verkefna getur numið allt að kr. 600.000 en þó aldrei hærri upphæð en 50% af innkaupsverði efnis.
Við mat á umsóknum verður horft til orkunotkunar húsnæðis. Forgang hafa verkefni til endurbóta þar sem orkunotkun hefur reynst verulega mikil í samanburði við viðmiðunargildi fyrir sambærilegt húsnæði. Umsóknareyðublöð má nálgast hér.
Upplýsingar fást í síma 569 6085. Einnig er hægt að hafa samband við Orkusetur á netfanginu sif@os.is.
Umsóknarfrestur er til 28. desember 2011.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir