Tilboð í niðurrif
Óskað er eftir tilboði í niðurrif á skemmu félagsins við Aðalstræti 98 á Patreksfirði.
Um er að ræða um 270 fermetra járnklætt timburhús að hluta klætt að innan með einangraða veggi. Steypta grunnplötu og að hluta lágir sökklar í inn og útveggjum. Að stórum hluta þá er byggingin einangruð með 4“og 5“ steinull sem er vel endurnýtanleg og í henni talsverð verðmæti og skal bjóðandi taka tillit til þess við verðlagningu verksins.
Tilboðið skal ná yfir að fjarlæga allt húsið og farga því sem er ónýtanlegt. Járn skal haft aðgreint og ætti ekki að þurfa að greiða fyrir förgun á því. Timbur skal haft aðgreint og fargað í samráði við og með samþykki byggingarfulltrúa Vesturbyggðar. Verki skal vera að fullu lokið fyrir 15. apríl 2013.
Upplýsingar gefur Ólafur Sæmundsson byggingarstjóri gsm. 822 5353
Tilboði skal skila eigi síðar en 28. febrúar 2013 til: Aðalstræti 100 ehf., Aðalstræti 100, 450 Patreksfjörður.
fh. Aðalstræti 100 ehf. Patreksfirði
Sigurður Viggósson gsm 892 3968
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir