A A A

Tilkynning frá félagsþjónustusvæðum Vestfjarða

Í ljósi umfjöllunar um kynferðisbrotamál í Kastljósi undanfarna daga vilja félagsþjónustur á Vestfjörðum (Félagsþjónustan við Djúp, Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar, Félagsþjónusta Stranda- og Reykhólahrepps og Félagsþjónustan í Vestur- Barðastrandarsýslu)  leggja áherslu á mikilvægi þess að þeir sem hafa orðið fyrir slíkri reynslu fái viðeigandi aðstoð og stuðning.
 

Félagsmálastjórar á Vestfjörðum, veita aðstoð í slíkum málum og þeir sem vilja eru hjartanlega velkomnir til viðtals. Jafnframt er bent á samtökin Stígamót eða Sólstafi Vestfjarða.

 

Elsa Reimarsdóttir, félagsmálastjóri í Vesturbyggð

Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri í Bolungarvík og Súðavík

Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps

Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjlskyldusviðs, Ísafjarðarbæjar

« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      
Næstu atburðir
Vefumsjón