Vestfjarðavegur lokaður vegna skriðu
Vestfjarðavegur nr. 60 í Kjálkafirði skammt austan Flókalundar er lokaður um óákveðinn tíma vegna skriðufalls. „Það er lokað suður. Þeir segja að lauslega áætlað hafi farið um 150 þúsund rúmmetrar af stað. Vegurinn er ófær, það eru um 30 metrar ofan á veginum. Byrjað er að ryðja á fullu og það verður auglýst þegar vegurinn verður opnaður,“ segir Eiður Thoroddsen, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Patreksfirði.
Vegurinn er eina leiðin suður nema farið sé norður um heiðar til Ísafjarðar og síðan inn Ísafjarðardjúp, yfir Steingrímsfjarðarheiði, suður Strandir og yfir Holtavörðuheiði. Heldur styttra er þó yfir Þröskulda upp af Ströndum, yfir í Reykhólahrepp og suður Dali. Þetta er hægt vegna þess að fært er yfir Hrafnseyrarheiði þessa stundina. Skriðan féll á Litlanesi í Litlaneshrauni.
Frétt tekin af: bb.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir