Forvarnir
Félagsmálaráð skal stuðla að forvörnum í áfengis- og vímugjafamálum í samstarfi við viðeigandi aðila, svo sem lögreglu, heilbrigðisþjónustu og skóla. Unnið er að mótun forvarnaráætlunar fyrir sveitarfélagið.
Lýðheilsustöð hefur unnið mikið og gott fræðslustarf og á vef þeirra er að finna góðar upplýsingar um áfengis og vímuefnavarnir.