A A A

Laus störf í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar

Tálknafjarðarhreppur auglýsir laus störf í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar.

 

Leitað er að einstaklingum með góða þjónustulund og getu til að sýna frumkvæði í starfi. Kunnátta í a.m.k. einu tungumáli auk íslensku er kostur. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og þurfa að standast hæfnispróf sundstaða.

 

Starfsfólk í Íþróttamiðstöð sinnir almennri afgreiðslu, þrifum, sundlaugarvörslu auk eftirlits með íþróttahúsi og klefum. Unnið er á vöktum dag, kvöld og helgar.. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní 2024 eða eftir samkomulagi. Bæði er hægt að sækja um framtíðarstarf sem og starf við sumarafleysingar. Starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar tilheyrir fjölskyldusviði Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

 

Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Skylt er að afla upplýsinga úr sakaskrá samkvæmt 4. málsgrein 10. greinar æskulýðslaga nr. 70/2007 áður en fólk er ráðið til starfa í íþróttamiðstöð. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri í síma 450-2500 eða sveitarstjori@talknafjordur.is.

 

Umsóknareyðublöð er að finna á talknafjordur.is og skila skal umsóknum á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði. Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2024 og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Yfir­flokk­stjóri og flokks­stjóri hjá vinnu­skóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstak­lingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 


Yfirflokkstjóri 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa. 

  • Leiðbeina ungmennum. 

  • Vera í samskiptum við foreldra ungmenna. 

 
Hæfniskröfur: 

  • Samskiptahæfni 

  • Jákvæðni 

  • Frumkvæði 

  • Samviskusemi 

  • Skipulagshæfni 

  • Stundvísi 

Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. 

 
Flokkstjórar 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Vinna með ungmennum og leiðbeina þeim 

Hæfniskröfur: 

  • Samskiptahæfni 

  • Jákvæðni 

  • Frumkvæði 

  • Samviskusemi 

  • Skipulagshæfni 

  • Stundvísi 

 
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2024.

Um er að ræða sumarstörf og eru laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps og tekur hún einnig á móti umsóknum á netfangið it@vesturbyggd.is.

Starf umsjónamanns eigna og hafnarvarðar laust til umsóknar

Tálknafjarðarhreppur auglýsir laust til umsóknar 100% starf umsjónarmanns eigna og hafnarvarðar.

 

Leitað er að úrræðagóðum einstaklingi sem er lipur í mannlegum samskiptum, með vilja til að taka ábyrgð og getu til að sýna frumkvæði í starfi.

 

Starfsmaðurinn mun annast almenna starfsemi Tálknafjarðarhafnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Sér um vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga vegna gjaldtöku á höfninni. Hefur eftirlit með eignum sveitarfélagsins, sinnir léttum viðhaldsverkefnum og kallar til þjónustuaðila eftir því sem við á. Þau verkefni sem starfsmanni er ætlað að sinna gætu tekið breytingum eftir að sameining Tálknafjarðarhrepps við Vesturbyggð hefur tekið gildi.

 

Starfsmaður verður að hafa löggildingu vigtarmanns, hafa almenn ökuréttindi, hafa vinnuvélaréttindi, hafa grunnþekkingu í tölvuvinnslu og getu til að vinna við algengustu forrit. Leitað er að einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, getu til samskipta á ensku og a.m.k. tveggja ára reynslu af iðnstörfum sem nýtast í starfinu.

 

Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um. Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

 

Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

 

Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson sveitartjóri í síma 450-2500 eða sveitarstjori@talknafjordur.is

 

Umsóknareyðurblað að finna á talknafjordur.is og skila skal umsóknum á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði.

 

Umsóknarfestur er til og með föstudagsins 12. apríl 2024.

Sumarstörf - Yfir­flokk­sstjóri og flokks­stjóri hjá vinnu­skóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstak­lingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 

 

Yfirflokksstjóri 

Tálknafjarðarhreppur leitar eftir kröftugum, áhugasömum, skipulögðum og skemmtilegum einstaklingi til að starfa í vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 

Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. 

Í starfinu felst að skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa, leiðbeina ungmennum og vera í samskiptum við foreldra barna og unglinga. 


Flokkstjórar 

Tálknafjarðarhreppur óskar eftir að ráða einstaklinga sem eiga gott að vinna með öðrum, hafa frumkvæði, eru góðar fyrirmyndir, stundvísir, metnaðarfullir og samviskusamir. Starf flokkstjóra felst í að vinna með ungmennum. 

  

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2024 

Um er að ræða sumarstörf og  eru laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps í síma 787 4175 og á netfanginu hafdishelga@vesturbyggd.is og tekur hún einnig á móti umsóknum. Áhugasamir einstaklingar sem uppfylla hæfniskröfur eru hvattir til að sækja um.


Eldri færslur
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Næstu atburðir
Vefumsjón