Gefur þú sérstakan kost á þér í heimastjórn?
Samhliða kosningum til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar þann 4. maí næstkomandi verða kosnir fulltrúar í heimastjórnir. Hægt er að kjósa um alla íbúa hvers svæðis, en einstaklingum sem vilja gefa sérstaklega kost á sér til heimastjórnar býðst að kynna sig og sín áherslumál í gegnum heimasíður sveitarfélaganna.
Kosið verður í heimastjórnir sama dag og kosið verður til sveitarstjórnar og eru tveir fulltrúar kosnir á hverjum stað. Heimastjórnirnar verða fjórar:
- Heimastjórn Arnarfjarðar
- Heimastjórn Tálknafjarðar
- Heimastjórn Patreksfjarðar
- Heimastjórn Rauðasandshrepps og Barðastrandar
Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr. Þeir tveir sem fá flest atkvæði á hverju svæði munu sitja í heimastjórn fyrir sitt svæði næstu tvö árin eða þar til kosið verður næst til sveitarstjórnar.
Kynningar á frambjóðendum
Einstaklingum sem hafa áhuga á því að sitja í heimastjórn og vilja gefa sérstaklega kost á sér til býðst að kynna sig og sín áherslumál í gegnum heimasíður sveitarfélaganna. Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta að hámarki 200 orð á netfangið muggsstofa@vesturbyggd.is. Þar þarf að koma fram fullt nafn og heimilisfang frambjóðanda. Kynningar á frambjóðendum verða birtar á heimasíðum Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar þegar líða fer að kosningu.
Hvað eru heimastjórnir?
Heimastjórnir eru fastanefndir innan nýs sameinaðs sveitarfélags sem starfa í umboði sveitarstjórnar. Markmiðið með heimastjórnum er að heimamenn hafi aðkomu að ákvörðunum sem varða nærumhverfi sitt og geta ályktað um málefni sem snýr að viðkomandi byggðarlagi og komið málum á dagskrá bæjarstjórnar. Í hverri heimastjórn eru þrír fulltrúar, tveir sem kosnir eru sérstaklega samhliða sveitarstjórnarkosningum og einn bæjarfulltrúi. Kjörgengir til heimastjórna eru allir íbúar á kjörskrá Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps, samkvæmt kjörskrá á sínu svæði.
Þar sem aðrar reglur gilda um kosningu í heimstjórn sem telst til íbúakosningar en kosningu í sveitarstjórn þá verður utankjörfundaatkvæðagreiðslan fyrir kosninguna í heimastjórn með sama sniði og hún var fyrir sameiningakosninguna, á skrifstofum sveitarfélaganna en ekki hjá sýslumanni eins og gildir um hefðbundnar kosningar.
Frekari upplýsingar um heimastjórnir og kosningar til þeirra veitir verkefnastjóri sameiningarvinnunnar, Gerður Björk Sveinsdóttir, á netfangið gerdur@vesturbyggd.is.