Helstu verkefni :
- Ábyrgð á að bókhald sveitarfélagsins og undirfyrirtækja sé rétt uppfært og afstemmt.
- Ábyrgð á gerð og útsendingu reikninga.
- Innheimta, eftirlit og tengiliður við Intrum.
- Skjalastjórnun í One system.
- Annast ljósritun og útsendingu fundargagna fyrir hreppsnefnd og aðrar nefndir eftir atvikum.
- Almenn afgreiðsla.
Starfskröfur :
- Ekki er gerð krafa um stúdentspróf en starfsmaður þarf að hafa lokið einhverju
skrifstofunámi/verslunarprófi eða hafa mjög mikla reynslu á starfssviðinu.
- Góð bókhaldsþekking er skilyrði.
- Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á excel töflureikni, word ritvinnslu, Outlook tölvupóstforriti og góð þekking á internetinu.
Viðkomandi þarf að vera lipur í samskiptum með þjónustulund, stundvís, reglusamur og snyrtimennska höfð í fyrirrúmi. Þá þarf viðkomandi að hafa gott vald á íslensku tal- og ritamáli, getu til þess að vinna sjálfstætt og hafa vilja til að sýna ábyrgð.
Starfshlutfall er a.m.k. 50%, laun skv. kjarasamningi FosVest og launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknum skal skilað til oddvita á skrifstofu eða rafrænt á netfang oddviti@talknafjordur.is Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á talknafjordur.is .
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 19.desember 2012.
Allar nánari upplýsingar veitir oddviti á skrifstofu sveitarfélagsins og/eða í síma 456-2539, gsm 863-5676 / netfang oddviti@talknafjordur.is
Björgvin Smári Haraldsson | miðvikudagurinn 5. desember 2012