Auglýsing: fundur í hreppsnefnd
447. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 7. nóvember 2012 og hefst kl. 17:00.
447. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, miðvikudaginn 7. nóvember 2012 og hefst kl. 17:00.
Fjórðungssamband Vestfirðinga vinnur að gerð sóknaráætlunar fyrir Vesfirði, en samkvæmt ríkisstjórnarsamþykkt frá 22. júní 2012 er landshlutasamtökum sveitarfélaga falið að vinna og bera ábyrgð á sóknaráætlun landshluta.
Vegna þessarar vinnu er boðað til funda með sveitarstjórnarmönnum, atvinnurekendum og öðrum hagsmunaaðilum á Vestfjörðum sem hér segir:
Félagsheimilinu á Patreksfirði þriðjudaginn 6. nóvember 2012 kl. 10.00-15.00
Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði miðvikudaginn 7. nóvember nk. efstu hæð 10.00-15.00
Hnyðja á Hólmavík miðvikudaginn 7. nóvember nk. kl. 10.00-15.00
Tekið er á móti skráningum á netfangið magnus@atvest.is fyrir þriðjudaginn 6. nóvember nk.
Vinna stendur yfir við gerð fjárhagsáætlunar Tálknafjarðarhrepps fyrir árið 2013. Auglýst er eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.
Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta fjárhagsár Tálknafjarðarhrepps eru hvattir til að skila þeim á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps fyrir 16.nóvember 2012. Umsóknum félagasamtaka um fjárstyrki skal fylgja ársreikningur 2011.
Oddviti.
Vegna jarðafarar á Patreksfirði laugardaginn 3. Nóvember n.k. verður farin aukaferð hjá ferjunni Baldri.
Brottfarir sem hér segir.:
„Ég heillaðist af Gísla ellefu ára gömul þegar ég horfði á Stiklur í sjónvarpinu. Hann náði til allra kynslóða og það voru allir að tala um hann,“ segir Ingibjörg Reynisdóttir rithöfundur og leikkona, en hún gefur í dag út bók um lífsöngu Gísla á Uppsölum. Bókin nefnist einfaldlega „Gísli á Uppsölum“, en hún er í grunnatriðum byggð á heimildum þótt höfundur taki sér skáldaleyfi stöku sinnum. Ingibjörg segir hugmyndina að bókinni hafa kviknað þegar hún tók að segja syni sínum sögur af Gísla.
...