Þriðjudaginn 26.júní n.k. verður Sigríður Inga dýralæknir stödd hér á Tálknafirði m.a. til að framkvæma hunda- og kattahreinsun. Sigríður verður með aðstöðu í skúrnum við Móberg frá kl. 12:00 – 14:00
Innifalið í leyfisgjöldum er hreinsun og ábyrgðartrygging, óski fólk eftir bólusetningu eða annarri meðferð þarf að panta fyrirfram í síma 861-4568 . Eigendur dýra þurfa að greiða sérstaklega fyrir þá þjónustu og vakin er athygli á að ekki er tekið við kortum.
Vakin er athygli á því að vanræki eigendur dýra þessa skyldu sína er það skýlaust brot á samþykktum um hunda og kattahald í Tálknafjarðarhreppi.
Eigendum óskráðra dýra er bent á að kynna sérsamþykktir og gjaldskrár um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu.
Samþykkt um kattahald frá 1.júní 2007
Samþykkt um hundahald frá 14. febrúar 2007
Gjaldskra fyrir kattahald
Gjaldskrá fyrir hundahald
Þá er sérstök athygli vakin á eftirfarandi málsgrein :
„Skrá á dýr sín innan þriggja mánaða frá því að þau koma inn á heimilið. Þeir sem hafa vanrækt þessa skyldu sína er bent á að skrá dýr sín strax, að öðrum kosti að eiga á hættu að dýrin verði fjarlægð eins og samþykktir kveða á um.“
Oddviti
Björgvin Smári Haraldsson | þriðjudagurinn 19. júní 2012