Hreinsun við Kirkjuna
Mánudaginn 30.apríl ætlum við að hittast við kirkjuna og hreinsa aðeins til á göngustígum og í kringum kirkjuna. Við ætlum að hittast klukka 19:30 og vera til ca 22:00. Það verða verkfæri á staðnum bara koma með hanska og góða skapið. Margar hendur vinna létt verk, vonandi sjáum við sem flesta til að fegra í kringum kirkjuna okkar.
Kveðja sóknarnefnd.
Sveitarstjórnarfundur
521. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38,
10. apríl 2018 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
Aðalfundur þjóðbúningafélagsins Auðar
Aðalfundur þjóðbúningafélagsins Auðar á sunnanverðum Vestfjörðum.
Haldinn sunnudaginn 8.apríl 2018 á Hópinu Tálknafirði kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundastörf
Skýrsla stjórnar
Skýrsla gjaldkera
2. Kosning stjórnar
Kosning gjaldkera
3. Starfið framundan
Námskeið
Starfssemi félagsins
Þjóðbúningadagar s.s. Sumardagurinni fyrsti, sjómannadagurinn, 17.júní
4. Önnur mál
Allir innilega velkomnir og gaman væri að mæta í þjóðbúningum. Kaffi og rjúkandi nýkar vöfflur í boði.
Spennandi sumarstörf á Minjasafninu að Hnjóti
Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti auglýsir eftir fólki til starfa á safninu sumarið 2018.
Helstu verkefni starffólks eru leiðsagnir um safnið, afgreiðsla í kaffiteríu, almenn þrif og önnur tilfallandi verkefni.
Við leitum að jákvæðum, þjónustulunduðum, skipulögðum og snyrtilegum einstaklingum með hæfni í mannlegum samskiptum. Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði og frekari tungumálakunnátta er kostur.
Frítt húsnæði er í boði fyrir starfsfólk í 5 km fjarlægð frá safninu. Eigið farartæki er kostur.
Frábært tækifæri fyrir nema eða annað áhugafólk um sögu, menningu og náttúru sunnanverðra Vestfjarða.
Atvinnuumsókn með ferilskrá sendist fyrir 10. apríl á netfangið museum@hnjotur.is
Frekari upplýsingar um starfið gefur Óskar Leifur Arnarsson í síma 456-1511 eða á museum@hnjotur.is.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir