Sveitarstjórnarfundur
520. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38,
6. mars 2018 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
520. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38,
6. mars 2018 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
Formleg afhending styrkjanna fór fram í dag kl. 11:00 í húsnæði OV að Stakkanesi Ísafirði, Eyrargötu Patreksfirði og Skeiði 5 Hólmavík.
Alls bárust 55 umsóknir og að þessu sinni voru veittir 43 styrkir samtals að fjárhæð 3.600.000 kr.
Þeir sem hlutu styrk að þessu sinni voru:
Á vef ov.is og facebook síðu Orkubúsins eru myndir frá afhendingu samfélagsstyrkjanna.
Sett hefur verið upp upplýsingasíða á facebook fyrir almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar verður hægt að nálgast upplýsingar allt sem viðkemur samgöngunum. Ef fella þarf niður ferðir vegna veðurs eins og kom fyrir nú í vikunni verða upplýsingar um það framveigis settar þar inn.
Síðuna má finna hér.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.
Unnt er að senda umsagnir um drögin til og með 9. febrúar nk. og skulu þær sendar á netfangið postur@anr.is.
Frumvarpið er á slóðinni:
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2018/01/30/Til-umsagnar-Drog-ad-lagafrumvarpi-um-breytingu-a-ymsum-lagaakvaedum-sem-tengjast-fiskeldi/
Gjalddagar verða 7. Fyrsti gjalddagi 1.febrúar, síðan 1.hvers mánaðar (febrúar til ágúst). Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Ef gjöld eru samtals lægri en kr. 25.000.- er um einn gjalddaga að ræða og er hann 15.febrúar. Ef álagning er kr. 500.- eða lægri verður krafan ekki innheimt.
Álagningarseðlar verða EKKI sendir út en verða aðgengilegir á ísland.is
Vinsamlega athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar nema þess sé sérstaklega óskað. Greiðsluseðlar munu birtast í heimabanka. Engin breyting verður hjá þeim sem pöntuðu seðla í fyrra. Hægt er að panta og afpanta seðla og álagningarseðla með því að hringja í síma 450-2500 á opnunartíma skrifstofu og/eða senda tölvupóst á talknafjordur@talknafjordur.is.
Sjá nánar hér: Bakhlið álagningarseðils 2018 (.pdf)
Indriði Indriðason
sveitarstjóri
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 24/2018 í Stjórnartíðindum
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Tálknafjörð
Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur og Hauganes)
Grýtubakkahrepp
Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018.
Fiskistofa, 23. janúar 2018 .