A A A

Sveitarstjórnarfundi frestað

517. fundi sveitarstjórnar hefur verið frestað vegna óviðráðanlegra orsaka. Nýr fundartími auglýstur síðar.

Eva Dögg Jóhannesdóttir
Oddviti Tálknafjarðarhrepps

Hollvinafélag Pollsins

Hollvinir Pollsins á Tálknafirði hafa loksins stofnað formlegt félag.
Félagið hefur facebook síðuna "Pollurinn-Pollvinir", þar sem finna má upplýsingar um félagið, tilgang þess og markmið. Félagið byggir á sjálfboðastarfi og er rekið án hagnaðarsjónarmiða.

Allir sem sækja um aðgang að síðunni verða sjálfkrafa félagsmenn. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér drög að samþykktum félagsins sem eru til kynningar næstu daga.

              Stjórnin

Sveitarstjórnarfundur

517. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn Strandgötu 38,
5. desember 2017
og hefst kl. 17:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)

         
Sveitarstjóri

Jólafjör UMFT

Jólafjör UMFT verður á sunnudaginn 3. desember í íþróttahúsinu og ætlum við að byrja kl. 11:30.

Við ætlum að fara í skemmtilega leiki og hafa gaman saman.

Hvetjum alla til að mæta, börn og fullorðna.

                      UMFT

Blóðsykursmæling

Lionsklúbbur Patreksfjarðar og   Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði  bjóða upp á mælingu blóðsykurs laugardaginn 2. desember 2017.
 

Mælingarnar fara fram á heilsugæslustöðinni á Patreksfirði að Stekkum 1 milli kl. 10:00 og 12:00
 

Þeir sem hafa áhuga á því að vita um stöðu blóðsykurs síns eru hvattir til að nota tækifærið  og mæta í mælingu.
 

Besta mælingin fæst með því að fasta (neyta engrar fæðu) frá kvöldinu áður.

Jólabingó Kvenfélagsins Hörpu

Jólabingó Kvenfélagsins Hörpu verður haldið
laugardaginn 25. nóvember nk. kl. 15:00 í Dunhaga

 

Sjáumst hress og kát. 

 

Hörpukonur

Eldri færslur
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Næstu atburðir
Vefumsjón