Auglýsing: Skipulagslýsing Bæjarvík
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 27. janúar 2015 skipulagslýsingu vegna deiliskipulags Bæjarvíkur.
Viðfangsefni deiliskipulagsins er að gera þarf ráð fyrir 2‐3000m2 kerskála, þ.e. byggingu yfir seiðaker þar sem hægt er m.a stýra birtu yfir hverju keri fyrir sig, starfsmannabyggingu og ásamt öðrum byggingum sem tengjast starfseminni.
Skipulagslýsinguna má nálgast á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Miðtúni 1 og á
heimasíðu sveitarfélagsins www.talknafjordur.is.
Íbúar og hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi viðfangsefni og markmið
skipulagsins. Ábendingar má senda á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, Miðtúni 1, 460
Tálknafirði eða á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is.
Skipulagslýsing fyrir athafnasvæði seiðaeldis í landi Gileyrar og Eysteinseyrar Tálknafirði (.pdf)
Auglýsing: Breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018 vegna Bugatúns, efnistökusvæðis og iðnaðarsvæðis
Breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018 vegna Bugatúns, efnistökusvæðis og iðnaðarsvæðis
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 21. október 2014 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að afmörkun svæðanna V3/A2 og S8 verði breytt og landnotkun á svæðinu næst Bugatúni breytt úr verslunar- og athafnasvæði í íbúðarsvæði. Hluti svæðanna S8 og S9 verður breytt úr stofnanasvæði í íbúðarsvæði og svæði S7 verður breytt úr stofnanasvæði í athafnasvæði, A6.
Iðnaðarsvæði I9 var hluti af breytingu á Aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018 sem staðfest var í júlí 2014. Í þessari tillögu er gert ráð fyrir öðru iðnaðarsvæði sem er merkt I9 en um er að ræða stöðvarhús fyrir virkjun í Kelduá og eldiskerjum. Gert er einnig ráð fyrir nýju efnistökusvæði í Botnsdal.
Tillagan var kynnt á opnu húsi 11. desember 2014 á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps fimmtudaginn 11. desember frá 10-14.
Deiliskipulagstillaga –Íbúðarsvæði Túnahverfi.
Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum 21. október 2014 að auglýsa deiliskipulag íbúðarsvæðis Túnahverfi Tálknafirði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/.
Hér er um að ræða deiliskipulag á um 11,6 ha sem afmarkast af opnu svæði við Bugatún í suðri, Lækjargötu í austri, Hrafnadalsvegi í vestri og Nátthagatúni í norðri. Í gildandi aðalskipulagi fyrir Tálknafjarðarhrepp 2006-2018 er svæðið skilgreint sem íbúðarsvæði, en einnig sem svæði fyrir þjónustustofnanir (S8). Unnið er að breytingu á aðalskipulagi samtímis deiliskipulaginu.
Megin markmið deiliskipulagsins eru eftirfarandi:
- Að nýta óbyggðar lóðir við núverandi götur innan byggðarinnar
- Að mynda nýja heilsteypta íbúðabyggð sem liggur vel í landi og myndar eðlileg tengsl við núverandi byggð.
- Að bjóða upp á mismunandi sérbýlishúsalóðir sem taka mið að þörfum bæjarbúa varðandi stærðir og húsagerðir.
- Að koma fyrir öruggum gönguleiðum í gegnum hverfið sem tengjast nærliggjandi byggð, þjónustu og útivistarsvæðum.
- Að móta öruggt og einfalt gatnakerfi.
Tillagan var kynnt á opnu húsi 11. desember 2014 á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps fimmtudaginn 11. desember frá 10-14.
Breytingartillagan og deiliskipulagstillagan verða til sýnis á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Miðtúni 1 frá og með mánudeginum 9. febrúar til 23. mars 2015 og aðalskipulagsbreytingin einnig hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Tillögurnar eru einnig til sýnis á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps, www.talknafjordur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til 23. mars 2015.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, Miðtún 1, 460 Tálknafirði.
Virðingarfyllst
Óskar Örn Gunnarsson
Aðalskipulagsbreyting. Breyting á þéttbýlisuppdrætti og nýtt efnistökusvæði. Greinargerð. (.pdf)
Aðalskipulagsbreyting. Breyting á þéttbýlisuppdrætti og nýtt efnistökusvæði. Uppdráttur. (.pdf)
Deiliskipulagstillaga. Íbúðarsvæði Túnahverfi. Skýringaruppdráttur. (.pdf)
Fornleifakönnun vegna deiliskipulags á Tálknafirði (.pdf)
Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur
479. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps
verður haldinn Miðtúni 1, Tálknafirði, þriðjudaginn 27. janúar 2015 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
Aukaferð á Baldri 7. febrúar
Farin verður aukaferð á ferjunni Baldri laugardaginn 7. febrúar n.k.
Frá Stykkishólmi kl, 09:00
Frá Brjánslæk kl. 12:00
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 637. fundur sveitarstjórnar 14. maí 2024
- Sveitarstjórn | 636. fundur sveitarstjórnar 30. apríl 2024
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 17. fundur 18. apríl 2024
- Skipulagsnefnd | 16. fundur skipulagsnefnar 16. apríl 2024
- Fræðslunefnd | 18. fundur fræðslunefndar 15.04.2024
- Sjá allar fundargerðir