A A A

Styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  2. Einstæðar mæður.
  3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.

 

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2014 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Netfang:  haukurhannibalsson@simnet.is

 

Í stjórn sjóðsins eru:  Haukur Hannibalsson, Óli Th.Hermannsson og Sigurður H. Magnússon.

Forstöðumaður félagsstarfs Tálknafirði

Félagsþjónusta Vestur-Barðastrandasýslu auglýsir starf forstöðumanns við íbúamiðstöðina Vindheima  laust til umsóknar. Um spennandi mótunar- og þróunarstarf er að ræða sem býður upp á fjölbreytta framtíðarmöguleika. Um 50% starf er að ræða.

...
Meira

Sumarfrí, lokun skrifstofu

Skrifstofa Tálknafjarðarhrepps verður lokuð dagana 21. júlí til 12. ágúst.
 
Ef erindið er brýnt er bent á síma sveitarstjóra 861-3359 eða netfangið talknafjordur@talknafjordur.is

Sýning um franska landkönnuðinn Yves-Joseph de Kerguelen – Tremarec

Fimmtudaginn 3. júlí kl. 16 verður opnuð í Safnaðarheimilinu á Patreksfirði sýning um franska landkönnuðinn Yves-Joseph de Kerguelen – Tremarec. Á sýningunni er rakin saga fyrsta vísindaleiðangurs Frakka til Íslands. Sá leiðangur er talinn marka upphaf vináttu Frakka og Íslendinga. Sýningin rekur ferðir Yves-Joseph de Kerguelen til Íslands 1767 og 1768. Franski sendiherrann, Marc Boutillier opnar sýninguna og býður upp á léttar veitingar. Eru allir velkomnir að vera við sýningaropnunina.

...
Meira

Fjölskylduhelgi í friðlandinu Vatnsfirði

Úr Surtarbrandsgili
Úr Surtarbrandsgili

Helgina 4 – 6 júlí verður haldin sannkölluð fjölskylduhelgi í friðlandinu Vatnsfirði. Boðið verður  upp á sögustundir, náttúruskoðun og  ratleik fyrir alla fjölskylduna. Einnig verður farið í fjölskyldugöngur í Náttúruvættið Surtarbrandsgil og skoðað hvernig flóra Íslands var fyrir 11 milljón árum síðan.  

Sjá dagskrá hér í viðhengi (.pdf)

Vestfjarðavíkingurinn 2014

Vestfjarðavíkingurinn, keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 10. til 12. Júlí. Keppt verður á eftirtöldum stöðum:

Fimmtudagur 10. Júlí
kl. 11:00   Snæfellsbær, Tröð Hellisandi:
                Kútakast, Bryggjupollaburður
kl. 17:00   Bjarkarlundur: Bóndaganga
kl. 19:00   Reykhólar, við félagsheimilið: Steinar upp fyrir höfuð

Föstudagur 11. Júlí
kl. 13:00   Patreksfjörður, Friðþjófs Torgi: Réttstöðulyfta
kl. 17:00   Tálknafjörður, Sundlauginni: Öxulpressur, Tunnuhleðsla

Laugardagur 12. Júlí
kl. 13:00   Búðardalur, við Leifsbúð: Trukkadráttur
kl. 17:00   Búðardalur, við félagsheimilið: Steinatök

Eldri færslur
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Næstu atburðir
Vefumsjón