Bára Grímsdóttir kvæðakona og maður hennar Chris Foster eru vel þekkt sem íslenskir þjóðtónlistarmenn undir nafninu Funi.
ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs Eyþings og Þjóðlagseturs.
Á mótinu verður þriggja klst. námskeið (2x1,5 klst) sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun kenna okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni.
...
Meira
Björgvin Smári Haraldsson | þriðjudagurinn 14. febrúar 2012