Þorrablót
Þorrablót Tálknafjarðar verður haldið laugardaginn 28. janúar 2023.
Frekari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.
https://www.facebook.com/events/831488241421056
Kær kveðja, Þorrablótsnefndin
Þorrablót Tálknafjarðar verður haldið laugardaginn 28. janúar 2023.
Frekari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.
https://www.facebook.com/events/831488241421056
Kær kveðja, Þorrablótsnefndin
Ágætu íbúar í Vesturbyggð og Tálknafirði.
Fimmtudaginn 24. nóvember n.k. munu Lionsklúbbur Patreksfjarðar bjóða fólki upp á fría blóðsykurmælingu. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði er öflugur bakhjarl þessa verkefnis og útvegar það sem til þarf í mælinguna. Mælingin fer fram á Hvest Patreksfirði fimmtudaginn 24. nóvember 2022 milli klukkan 16.00. og 18.00.
Sykursýki (diabetes mellitus) er efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af of háum blóðsykri, sem stafar annaðhvort af of litlu magni insúlíns í blóði eða af óeðlilegri virkni insúlíns ásamt því að magn þess sé of lítið. Algengustu einkennin eru þorsti, tíð þvaglát og sjóntruflanir.
Tegund tvö af sykursýki fyrirfinnst í flestum tilfellum í eldra fólki, en er þó farið að finnast í yngri kynslóðum með hækkandi tíðni offitu í heiminum. Meðferð við sykursýki af tegund tvö er í byrjun oftast breytt mataræði og góð líkamleg hreyfing. En þegar sjúkdómurinn er kominn lengra getur lyfjagjöf verið nauðsynleg.
Þegar fólk mætir í blóðsykurmælingu, sem er einföld í framkvæmd, fæst úr því skorið hvert blóðsykurgildið er. Stungið er í fingurgóm og teknir nokkrir blóðdropar, sem settir eru á strimil og niðurstaðan fæst svo til strax. Ef niðurstaðan er á þann veg að viðkomandi er með háan blóðsykur, þá er honum umsvifalaust bent á að ræða við heimilislækni sinn.
Þann 14. nóvember ár hvert er alþjóðlegur sykursýkisvarnadagur Lionshreyfingarinnar. Í tæp sextíu ár hefur það verið baráttumál Lionshreyfingarinnar að fræða fólk um sjúkdóminn og finna þá sem ganga með dulda sykursýki.
Með þessu átaki viljum við í Lionsklúbbi Patreksfjarðar stuðla að betri forvörnum og hjálpa til við að finna þá sem eru með þennan sjúkdóm á byrjunarstigi.
f.h. Lionsklúbbs Patreksfjarðar
Boðað er til 602. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, þriðjudaginn 22. nóvember 2022 og hefst kl. 17:00.
Sjá fundarboð hér (.pdf)
Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri
Vísindamenn á Vestfjörðum bjóða á opið hús í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði fimmtudaginn 17. nóvember 2022 kl. 17:30 til 18:30.
Vestfirskir rannsóknarmenn og fyrirtæki munu kynna niðurstöður sínar á áhugaverðum rannsóknum sem hafa nýlega verið framkvæmdar á Vestfjörðum. Fyrirlestrarnir fara fram í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði og boðið verður upp á popp og kók. Í lokin verður stuttur spurningar leikur með vinningi. Viðburðurinn er styrktur af Rannsóknarsamfélagi Vestfjarða, sem er þverfaglegur hópur rannsóknarmanna sem á það markmið að vilja kynna almenningi rannsóknir sínar.
https://www.facebook.com/events
Öll eru velkomin.
Opið hús verður um tillögur breytingu á deiliskipulagi Tálknafjarðar og breytingu á deiliskipulagi fyrir athafnasvæðis Tungusilungs.
Opna húsið verður haldið á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Strandgötu 38, fimmtudaginn 17. nóvember frá kl. 12:00 - 14:00.
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta og kynna sér skipulagið.
Tillagan er í auglýsingu og þar gefst þá íbúum kostur að koma með skriflegar athugasemdir.