A A A

Sveitarstjórnarfundur

529. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38, fimmtudaginn 16. ágúst 2018 og hefst kl. 18:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)

Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri

 

Starfsfólk óskast

Íþróttahúsið á Tálknafirði auglýsir laus störf við sundlaugina við sundlaugina í vetur.

Störf sundlaugarvarðar felst í almennri afgreiðslu og þrifum auk eftirlits með sundlaug og íþróttahúsi. Unnið er á vöktum, dag, kvöld og helgar.

Æskilegt er að viðkomandi sé þjónustulundaður og sýni frumkvæði í starfi.
Æskilegt er að umsækjandi tali auk íslensku amk eitt tungumál.
Umsækjendur skulu vera orðnir 18.
ára.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOS-VEST og Launanefndar sveitafélaga.

Skylt er að afla upplýsinga úr sakaskrá skv. 4 mgr. 10 gr. Æskulýðslaga nr. 70/2007.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarnveig Guðbrandsdóttir í síma: 846 4713
eða sundlaug@talknafjordur.is

Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2018.

Skrifstofan lokuð

Skrifstofa Tálknafjarðarhrepps verður lokuð vegna sumarleyfa frá 30.07-10.08 að báðum dögum meðtöldum.
 

Kveðja, starfsfólk Tálknafjarðarhrepps

Sveitarstjórnarfundur

528. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps sem er aukafundur, verður haldinn að Strandgötu 38, fimmtudaginn 26. júlí 2018 og hefst kl. 18:00.
 

Sjá fundarboð hér (.pdf)

 
 

Guðný Sverrisdóttir, Sveitastjóri.

Vinnuvélanámskeið í ágúst

Vinnueftirlitið í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða, heldur námskeið fyrir minni vinnuvélar.
Frumnámskeið á Partreksfirði dagana 29. 30. og 31. ágúst 2018.
Námskeiðið er frá 09:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00 alla dagana en í lok síðasta dags er bóklegt próf.
 

Námskeiðið veitir bókleg réttindi á:

    Lyftara með 10 tonna lyftigetu og minni - J flokkur

    Dráttarvélar með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnuvéla (4t og undir) - I flokkur

    Körfukrana og steypudælur - D flokkur

    Valtara - L flokkur

    Útlagningarvélar fyrir bundið slitlag - M flokkur

    Hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18 tm lyftigetu - P flokkur

Námskeiðið kostar 47.000
Skráning er á heimasíðu Vinnueftirlitsins á slóðinni https://www.vinnueftirlit.is/fraedsla/dagsett-namskeid/

Nánari upplýsingar og spurningar í síma 550-4600 eða netfangið ver@ver.is

Staðsetning verður ákveðin þegar fjöldi þátttakenda er ljós

Níu umsækjendur um starf sveitarstjóra hjá Tálknafjarðarhreppi

Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra sem auglýst var laust til umsóknar, rann út 16. júlí síðastliðinn.
Níu umsækjendur eru um stöðu sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps en einn dró umsókn sína til baka.


Umsækjendur eru:
 

Birgir Guðmundsson, Viðskiptafræðingur
Björn S. Lárusson, Verkefnastjóri
Glúmur Baldvinsson, M.Sc,Alþjóðasamskipti
Ingimundur Einar Grétarsson, Stjórnsýslufræðingur
Linda Björk Hávarðardóttir, Verkefnastjóri
Steinunn Sigmundsdóttir, Fasteignasali
Þorbjörg Gísladóttir, Viðskiptafræðingur
Þórður Valdimarsson, Viðskiptafræðingur

 

Eldri færslur
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Næstu atburðir
Vefumsjón