A A A

Ferjan Baldur, aukaferð 17.Janúar

Baldur mun sigla aukaferð á sunnudaginn 17. Janúar 2021.

Brottför frá Stykkishólmi 08:30

Brottför frá Brjánslæk 12:00
 

Ath. Ekki er stoppað í Flatey í þessari aukaferð.

Seinni ferð dagsins verður svo samkvæmt áætlun.
 

Við viljum góðfúslega benda farþegum okkar og flutningsaðilum á fylgjast með fréttum hér á vefsíðu Sæferða www.saeferdir.is
 

Mikilvægt er að bóka í ferðir Baldurs til að tryggja pláss. Einungis er hægt að bóka símleiðis í ferðina kl. 8.30 á sunnudaginn 17. Janúar. 

Heimaþjónusta í Tálknafirði

Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir starfsmanni til að sinna heimaþjónustu. Um er að ræða hlutastarf u.þ.b. 6 – 8 tímar á viku.

Starfið fellst í því að fara á heimili eldri borgarar sem eru með þjónustu og aðstoða við heimilisverkin.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.

Áhugasamir geta haft samband við undirritaða.
  Arnheiður Jónsdóttir, félagsmálastjóri
  sími 450-2500
  arnheidur@vesturbyggd.is

 

Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar, endurnýjun lagna

Tálknafjarðarhreppur óskar eftir tilboðum í verkið „Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar, endurnýjun lagna“.
 

Um er að ræða endurnýjun á gólfhitalögnum og neysluvatnslögnum í húsinu ásamt endurnýjun á öllum gólfefnum, dúk, flísum og parketi ásamt málun hússins að innan.
 

Helstu stærðir eru:

Gólfhitalagnir 4800 m

Parket 440 m

Flísar 309 m

Gólfdúkur 293 m
 

Verkinu skal vera að fullu lokið í 1. júní 2021.
 

Útboðsgögn verða afhent frá og með 8. janúar 2021. Þeir sem óska eftir að fá útboðsgögn afhent skulu senda tölvupóst á netfangið jbh@verkis.is.
 

Tilboðin verða opnuð hjá Tálknafjarðarhreppi, Strandgötu 38, 27. janúar 2021 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
 

Þorrablótið slegið af

Góðir Tálknfirðingar. Gleðilegt nýtt ár og megi það færa ykkur gæfu og gleði.


Vegna kórónuveirunnar mun þorrablót okkar verða slegið af þetta árið. Sama nefnd mun þó halda blótið 2022 þegar allt verður orðið gott aftur.

 

Fyrirhönd þorrablótsnefndar

Jón Örn Pálsson

Breyttur opnunartími skrifstofu

Opnunartími skrifstofu Tálknafjarðarhrepps breytist nú frá og með áramótum. Skrifstofan verður nú opin frá mánudögum til fimmtudaga kl. 10:00 til 14:00 og á föstudögum frá kl. 10:00 til kl. 13:30.
 

Flugeldasýning á gamlárskvöldi

Að venju mun Björgunarsveitin Tálkni bjóða Tálknfirðingum upp á veglega flugeldasýningu á gamlárskvöldi, fimmtudaginn 31. desember. Sýningin hefst kl. 21:00 og að þessu sinni verður skotið frá steypta vellinum fyrir aftan Hópið. Fimm mínútum áður en hin eiginlega sýning hefst verður einn skoteldur settur í loftið til að minna á að sýningin sé að hefjast.
 

Vegna sóttvarnareglna er fólk vinsamlegast beðið um að njóta sýningarinnar frá heimilum sínum og með sinni jólakúlu. Alls ekki á að fara nær skotstað en að Hrafnadalsvegi. Vegna sóttvarnareglna verður engin áramótabrenna þetta árið.
 

Flugeldasala Tálkna er í húsnæði björgunarsveitarinnar við Strandgötu og er opin miðvikudaginn 30. desember milli kl. 18:00 og 21:00 og fimmtudaginn 31. desember milli kl. 12:00 og 14:00. Tálknfirðingar eru hvattir til að styðja við nauðsynlegt og óeigingjarnt starfs sveitarinnar með kaupum á skoteldum, en muna samt eftir andlitsgrímunni sem og öðrum sóttvarnarreglum þegar sölustaðurinn verður heimsóttur.

Eldri færslur
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Næstu atburðir
Vefumsjón