Sveitarstjórnarfundur
511. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38, Tálknafirði, 19. apríl 2017 og hefst kl. 18:00.
Sveitarstjóri
511. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38, Tálknafirði, 19. apríl 2017 og hefst kl. 18:00.
Sveitarstjóri
Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp á námskeið í endurmenntun atvinnubílstjóra með ökuréttindi í flokkum C1, C, D1 og D.
Atvinnubílstjórum í vöruflutningum og farþegaflutningum í atvinnuskyni er gert að sækja 35 kennslustunda endurmenntun á fimm ára fresti. Námskeiðin eru fimm talsins sjö kennslustundir hvert.
Þeir bílstjórar sem fengið hafa réttindi sín fyrir 10. september 2013 þurfa að ljúka endurmenntun fyrir 10. september 2018. Allir sem endurnýja ökuskírteini með þessum flokkum eftir þann tíma þurfa að hafa lokið endurmenntun.
Fræðslumiðstöð Vestfjarða er með leyfi og viðurkenningu frá Samgöngustofu samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.
Eftirfarandi námskeið verða í boði í maí og júní, skráning og upplýsingar í síma 4565020 og á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða http://frmst.is/ .
Kæru íbúar Vesturbyggðar og Tálknafjarðar.
Við hjá Skíðafélagi Vestfjarða ætlum að hafa opinn dag til kynningar á Golíat og endurlífgun vetraríþrótta á S-Vestfjörðum. Að því tilefni verða troðnar brautir til að renna sér. Við mælum með skíðum, brettum og eða hvaða búnaði sem er (slöngur, sleðar eða plastpokar). stefnt er að byrja um hádegi 9.apríl n.k. Staðsetningin er Hálfdán við stóru beygju Bíldudalsmegin. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Vélsleðafólk er beðið um að aka ekki sporum eða brautum troðarans.
Skíðafélag Vestfjarða á Facebook
Opnunartími íþróttahúss um páska er sem hér segir:
13. apríl – Skírdagur 11-14
14. apríl – Föstudagurinn langi LOKAÐ
16. apríl – Páskadagur LOKAÐ
17. apríl – Annar í páskum 11-14
20. apríl – Sumardagurinn fyrsti 10-13
Kæru viðskiptavinir.
Frá og með 1. maí 2017 verður ekki opið hjá okkur á laugadögum.
Varan sem fer í bílana á föstudögum er hægt að nálgast á mánudagsmorgnum eftir kl. 9:00.
Virðingafyllst,
Nanna ehf. vöruflutningar, Patreksfirði
Þann 25. mars. nk. á milli kl.20:30-21:30 er stund sem kallast Jarðarstund. Markmið Jarðarstundar er að hvetja íbúa heims til aðgerða gegn loftlagsbreytingum með því að slökkva ljósin í eina klukkustund og sýna þannig fram á vitundarvakningu.
Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund skipulögðu Earth Hour í fyrsta sinn árið 2007 með því að ljósin voru slökkt í einni borg, Sydney í Ástralíu. Jarðarstundin á því 10 ára afmæli árið 2017. Í dag erum 7,000 borgir í 178 löndum sem hafa látið vita um þátttöku og er því um að ræða eitt fjölmennasta samstillta einstaklingsátak á sviði umhverfisvakningar í heiminum að. Flest sveitarfélög á Vestfjörðum ætla að taka þátt í Jarðarstund í ár en bæði einstaklingar, félög borgir og bæir geta tekið þátt og skráð viðburð á earhhour.org.
Allir eru hvattir til að taka þátt í Jarðarstundinni og kveikja ekki á rafmagnsljósum milli kl. 20:30 og 21:30 laugardaginn 25. mars. Njótum myrkurs, skoðum stjörnurnar og kveikjum svo á kertum og hugsum um hvað við getum lagt af mörkum til að bæta umhverfið og vinna gegn loftslagsbreytingum.
Tálknafjarðarhreppur tekur þátt í verkefninu og verður slökkt á ljósastaurunum á þessum tíma.