Breyting á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018
Forkynning skv. 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Í undirbúningi er vinna við breytingu á Aðalskipulagi Tálknfjarðarhrepps 2006-2018 sem staðfest var 15.12.2006. Um er að ræða breytingu á landnotkun á jaðarsvæðum í þéttbýli Tálknafjarðar. Hlíðar ofan byggðar, lækjarfarvegir, gil, árbakkar, fjörur og strandsvæði eru skilgreindar sem opið svæði til sérstakra nota í staðinn fyrir óbyggð svæði. Mörk þéttbýlis eru einnig stækkuð til austurs.
Fyrirhuguð er einnig stækkun hafnarsvæðis á Tálknafirði en aukin umsvif vegna fiskeldis og aukin eftirspurn eftir lóðum á hafnarsvæði kalla á stækkun hafnarsvæðisins og aukna landfyllingu.
Gerðar eru viðeigandi breytingar á uppdrætti og greinargerð.
Deiliskipulag íbúðabyggðar ofan Strandgötu og varnarmannvirkja í Geitárhlíð
Forkynning skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Helstu markmið deiliskipulagsins er:
- Að skilgreina núverandi lóðir og lóðarstærðir á svæðinu.
- Að svæðið bjóði upp á sveigjanleika í notkun fyrir þá sem búa þar og starfa.
- Að skilgreina öruggar umferðarleiðir fyrir, akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur.
- Að auka öryggi gagnvart þeirri náttúruvá sem ofanflóð hafa í för með sér.
Bent er sérstaklega á að verið er að skilgreina lóðir á íbúðasvæði og geta því lóðir verið að stækka eða minnka eftir því sem við á og eru íbúar sem hagsmuna eiga að gæta beðnir sérstaklega beðnir um að kynna sér deiliskipulagið.
Tillögurnar verða til sýnis á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps. Kynningin mun standa til 7 janúar 2016.
Íbúafundur/-kynning verður auglýstur síðar.
Breyting á Aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018- Greinargerð og umhverfisskýrsla
SA0026F-Grg-2016-10-10 (.pdf)
Breyting á Aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018- Uppdráttur
SA26F_Jadar_thettbylis-A3-Plott (.pdf)
Greinargerð með deiliskipulagi
DU1602-Greinagerd-2016-10-21 (.pdf)
Uppdráttur með deiliskipulagi
DU1602-D01-minnkad (.pdf)
Björgvin Smári Haraldsson | miðvikudagurinn 7. desember 2016