A A A

Vinnuskóli 2023

Börnum á Tálknafirði sem eru fædd 2007-2010 býðst að taka þátt í Vinnuskólanum í þrjár vikur sumarið 2023, frá og með mánudeginum 26. júní n.k. 

 

Það hefur ekki tekist að ráða flokkstjóra til starfa í sumar og því hefur starfsemin ekki farið af stað. Nú hefur Jóna Sigursveinsdóttir hefur hins vegar tekið að sér umsjón með Vinnuskólanum hluta sumars og því er hægt að bjóða ungmennum upp á vinnu hálfan daginn í þrjár vikur. Unnið verður mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:00 til 12:00 og verður fyrsti vinnudagur mánudaginn 26. júní 2023 og sá síðasti fimmtudaginn 13. júlí 2023.

 

Skila þarf útfylltu umsóknareyðublaði á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps og er mikilvægt að það sé undirritað af forráðamanni. Hægt er að nálgast umsóknareyðublaðið á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps eða hér.

Hér má finna nánari upplýsingar um Vinnuskóla Tálknafjarðar 2023.

Skrifstofan lokuð

Skrifstofa Tálknafjarðarhrepps  verður lokuð föstudaginn 16. júní og mánudaginn 19 júní .

Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 20 júní. 2023 kl. 10:00

 

Kveðja, starfsfólk skrifstofu Tálknafjarðarhrepps.

Velheppnaðir íbúafundir

Í síðustu viku fóru fram fimm íbúafundir þar sem kynnt voru drög að stöðugreiningu og forsendum fyrir sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Fundirnir voru haldnir á Barðaströnd, Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal ásamt því sem haldinn var fundur sérstaklega fyrir fólk af erlendum uppruna á Tálknafirði. Þegar kynningu lauk bauðst íbúum að taka þátt í vinnustofu þar sem þau gátu komið á framfæri sínu áliti á hugsanlegri sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Samstarfsnefndin mun í framhaldinu vinna úr þeim ábendingum. 

 

Nánar má lesa um fundina á heimasíðunni vestfirdingar.is sem birtir upplýsingar og frettir er varða sameiningarviðræður Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar á þessari slóð:

 

https://www.vestfirdingar.is/is/um-verkefnid/frettir/velheppnadir-ibuafundir

Þín rödd skiptir máli

Í síðustu viku fóru fram fimm íbúarfundir þar sem íbúar fengu kynningu á drögum að stöðugreiningu og forsendu fyrir sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Í framhaldinu gafst þátttakendum á fundinum tækifæri til að hafa áhrif á stöðugreininguna, forsendu fyrir sameiningu og framtíðarsýn fyrir nýtt sveitarfélag komi til sameiningar. 

 

Nánar má lesa um fundina á heimasíðunni vestfirdingar.is sem birtir upplýsingar og frettir er varða sameiningarviðræður Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar á þessari slóð:

 

https://www.vestfirdingar.is/is/um-verkefnid/frettir/thin-rodd-skiptir-mali

Sundlaugarsvæðið lokað í upphafi vikunnar

Vegna viðhaldsframkvæmda þarf að loka sundlaug Tálknafjarðar nú í upphafi vikunnar, en þurrkurinn sem er framundan verður nýttur til að mála sundlaugarkerið sem og nokkurra annarra verka. Vegna þessa verður sundlaugarsvæðið lokað mánudaginn 12. júní 2023 og einhverja daga þar á eftir. Byrjað verður að hleypa vatni úr sundlauginni sunnudaginn 11. júní og því þarf að loka henni fyrr þann daginn.

 

Á mánudaginn verður lokað í alla þjónustu á vegum Íþróttamiðstöðvarinnar, en stefnt að því að geta opnað lyftingarsalinn á þriðjudaginn. Það ætti að nást að opna sundlaugina aftur fyrir næstu helgi, en nánari fréttir af því koma þegar líður á vikuna.

Sveitarstjórnarfundur

Boðað er til 614. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, þriðjudaginn 13. júní 2023 og hefst kl. 17:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)

Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri

Eldri færslur
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Næstu atburðir
Vefumsjón