Umsóknir um styrki úr húsafriðunarsjóði 2013
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Húsafriðunarsjóði fyrir árið 2013.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013. Stefnt er að því að úthlutun liggi fyrir í byrjun maí.
Meira
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Húsafriðunarsjóði fyrir árið 2013.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013. Stefnt er að því að úthlutun liggi fyrir í byrjun maí.
28. febrúar nk. kl.18:00 verður opið hús í félagsheimili Patreksfjarðar vegna deiliskipulagsvinnu við Látrabjarg og nágrenni.
Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða, Hvallátra, Breiðavík og Keflavík. Á staðnum verða fulltrúar Barrk arkitektastofu sem vinna skipulagið fyrir hönd Vesturbyggðar. Einnig verða starfsmenn Umhverfisstofnunar og Vesturbyggðar sem koma að skipulagsmálunum. Vinnugögn fyrirhugaðs deiliskipulags eru aðgengileg á heimasíðu Vesturbyggðar www.vesturbyggd.is og hjá skipulagsfulltrúa í síma: 4502300/4502312 eða tölvupósti á armann@vesturbyggd.is. Einnig er hægt að óska eftir gögnum skriflega hjá undirrituðum.
Íbúar og hagmunaaðilar eru hvattir til þess að mæta og gefst þeim tækifæri á að kynna sér skipulagsvinnuna og koma með spurningar og athugasemdir. Til kynningar verða uppdrættir í vinnslu af svæðunum.
Vinnugögn tillögunnar má sjá hér
Hér má sjá uppbyggingu deiliskipulags
Ármann Halldórsson Skipulags -og byggingarfulltrúi Vesturbyggðar
Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði.
Óskað er eftir tilboði í niðurrif á skemmu félagsins við Aðalstræti 98 á Patreksfirði.
Um er að ræða um 270 fermetra járnklætt timburhús að hluta klætt að innan með einangraða veggi. Steypta grunnplötu og að hluta lágir sökklar í inn og útveggjum. Að stórum hluta þá er byggingin einangruð með 4“og 5“ steinull sem er vel endurnýtanleg og í henni talsverð verðmæti og skal bjóðandi taka tillit til þess við verðlagningu verksins.
...Föstudaginn 1. mars 2013 verður aukaferð með ferjunni Baldri auk hefðbundinnar áætlunnarferðar. Sem sagt 2 ferðir þann dag.
Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og aftur kl 15:00.
Frá Brjánslæk kl. 12:00 og aftur kl 18:00.
Starfsfólk Sæferða ehf.
Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli.
Sjá nánar á vefsíðu Menningarráðs Vestfjarða.
Súpufundur í Sjóræningjahúsinu fimmtudaginn 21. febrúar, kl. 12:30.
Fyrirlesari dagsins er Haukur Már Sigurðarson.
Haukur Már kynnir verkefnið Staparnir – ljóðlistaverk, og býður um leið til stofnfundar vinnuhóps um verkefnið. Farið verður yfir stöðu verkefnisins í dag, sagt frá því sem búið er að vinna og hvað er framundan.
Sýnd verða drög að fyrsta skiltinu og kynnt staðsetning og framsetning annarra skilta.
Allir sem hafa áhuga á að koma að verkefninu á einhvern hátt eru hvattir til að mæta. Stjórnir félagasamtaka, forstöðumenn fyrirtækja og stofnana sem og sveitstjórnarfólk eru sérstaklega hvattir til að koma og kynna sér verkefnið.
Súpa, brauð og kaffi 1.200 kr.